Kristín krunkar...

krunk krunk

Blogg

29.8.2008

af gefnu tilefni....

Aðskotahlutur í öndunarvegi

Öndunarvegur getur stíflast ef aðskotahlutur hrekkur ofan í háls. Þegar stendur í fólki er algengast að matarbiti hafi farið niður í öndunarveg í stað vélindans. Lítil leikföng eða aðrir smáhlutir sem börn stinga upp í sig geta farið sömu leið.

Hvað sérðu?
* Einstaklingurinn getur ekki talað, hóstað eða andað og grípur um hálsinn.

Hvað gerirðu- fullorðnir og börn eldri en eins árs?
* Hvetti viðkomandi til að hósta kröftuglega, ef hann getur.
* Ef aðskotahluturinn losnar ekki, hallaðu viðkomandi fram, haltu með annari hendinni við bringuna og sláðu þéttingsfast með hinni fimm sinnum á milli herðablaðanna. Ef aðskotahluturinn losnar ætti hann að koma út um munninn í stað þess að fara lengra niður í öndunarveginn.
* Beittu Þrýstingi á efri hluta kviðar (Heimlich). Stattu aftan við manneskjuna og gripið um kvið hennar rétt fyrir ofna nafla. Krepptu hnefa annarar handar og gríptu um hann með hinni hendinni. Þrýstið allt að 5 sinnum snöggt inn á við og upp.
* Ef einstaklingurinn missir meðvitund, skalti hringja í Neyðarlínuna 112 og byrja endurlífgun.  (stolið af redcross.is)

Á þessu má sjá að ég fór nú ekki allveg eftir bókinni þegar ég bjargaði
honum Jóni frænda mínum frá því að kafna í Þórsmörk um daginn,
en við erum nú ekkert að fást um það! er það?
Þetta endaði allt saman vel:)

fariði nú varlega elskurnar mínar og góða helgi.

Skrifað 29.8.2008 kl. 14:45 af Kristínu

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.8.2008

zzz.....

hér var ég búin að blogga mjög svo innihaldslaust raus svo ég bara þurrkaði
það út og hananú! Ég hef ekkert að segja en verð samt að láta vita
af mér hérna..... ég er svo athygglisjúk hihi....
ég lofaði engu um það en við fórum sko í gærkvöldi og þrifum bílinn:)
hann er semsagt grænn að utan (ekki brúnn) og svartur að innan (ekki brúnn)
hahaha.... við vorum farin að halda það!
úti skín sólin skært.... sem er fínt.... rak augun í það að haustmánuður
byrjar 25. sept. þannig að þá kemur haustið semsagt eða er það ekki?
eða byrjar það á 'haustjafndægur' sem er 22. ? maður spyr sig? hvað veit ég?

Enn.... svo Anna María hafi það á hreinu þá er fimmtudagur í dag
sem þíðir að það er föstudagur á morgun og þá er helgin komin hihihi...
'smá útúrsnúningu' en bara gaman að því.

bið að heilsa ykkur.... 

Skrifað 28.8.2008 kl. 10:01 af Kristínu

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.8.2008

bleikir fílar og sokkabönd

setti inn nokkrar myndir af framkvæmdum heima...
ferlega bleikar myndir eitthvað en ég skvetti þeim samt hér inn:)
og þarna sést hvað svona framkvæmdum fylgir mikið drasl! og dót útum allt!
en ég er svo skrítin að ég hef bara gamanaf því:) það er svo gaman að taka til!
þegar Venninn minn var búinn að vinna í gær fórum við til Ottó að bora gat í gólf,
jájá drengurinn minn, Ottó og hann Júlli Fúsa snillingur eru að taka herbergi
í Sindrabæ í gegn svo þeir hafi aðstöðu fyrir tónlistina sína.
Þeir fengu úttektarheimild fyrir heilar 5000 krónur til þess að taka þetta í gegn
og eru framkvæmdir komnar í 45.000 krónur fyrir utan alla vinnu
og er hann Venni pabbi búin að hjálpa þeim helling!
Það er eins gott að þessi kitra verði ekki tekin af þeim eins og sú síðasta
sem hann Ottó tók í gegn  jah þá verður mér að mæta!
þegar gatið var komið í gólfið fórum við heim til þess að elda og eta
en þá hringdi Róbert snúður í Venna sinn, búinn að festa mótorhjólið útá
litlubraut og var það komið á kaf í leiru! Venninn skutlaðist í að redda málunum,
kom heim að sækja skóbblu því hjólinu var hreinlega ekki haggað þarna
í drullunni! þegar öllu þessu var lokið skellti hann í sig kjötbollum og
skellti sér svo á fótboltaæfingu með old boys! óstöðvandi maðurinn! hahaha...
við fórum svo að stækka hjá hrossunum því þau eru svo mörg þarna núna
og éta þetta á einninúllátta! en þrjú af níu fara nú fljótlega og hún
Díana 'prinsessa' fer svo í sveit sólar á næstu dögum.
Bissí dagur í gær hjá sumum... ég var nú bara tjillla sko!
Karlinn er svo á fundi í Reykjavík í dag, situr þar og safnar harðsperrum hihihi...
kemur aftur í kvöld og okkur finnst aðeins spurning hvort það þurfi ekki
að þrífa bílinn aðeins og nota þá kvöldið í það.... við lofum engu:)
nú! svo er maður að heyra af smitandi faraldri hjá 'klippikonum' í firðinum fagra!
það verður engin almennilegur klippari að störfum í lok árs vegna fjölgunnar
á mannkyninu, skelfilegt fyrir okkur íbúana en yndislegt fyrir þær og þeirra fjölskyldur
og gósentíð framundan hjá Ásbirni! ójesss! hahaha....
helld ég láti staðar numið að sinni og fari að skella mér í mat! mmmm.....

Skrifað 27.8.2008 kl. 11:21 af Kristínu

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.8.2008

gúddmorning æsland

jæja! komin í vinnu eftir stutt en skemmtilegt frí:)
ferðin í þórsmörk var æði:) frábærlega skemmtilegt fólk og mikið stuð
og mikið grín allann tímann. Mér fannst reyndar pínu erfitt að fara yfir
Steinholtsána!!! en það gekk vel og allir komust þurrir í mörkina:)
það rigndi meira að segja nánast ekki neitt á okkur sem var mjög gott.
í gær ætlaði ég svo að vera híber dugleg heima en nennti ekki miklu...
gafst upp á að ryksuga með gömlunni, hentist útí húsó og bað bóndann
um nýja græju:) sem hann lét auðvitað eftir mér :) nú get ég ryksugað
eins og vindurinn! sú gamla var bara farin að hræra ryki!!
þannig að munurinn er gífurlegur. í nótt dreymdi mig skelfilegan draum!
man hann samt ekki en ég vaknaði kl 01.11 og gat bara ekki sofið meira!
varð að fara framm og ath með strákana mína.... það var allt í góðu
í báðum herbergjum svo ég tók úr þurrkaranum og braut saman þvott.....
skreið einhverntíman aftur uppí og reyndi að sofa en gekk illa.....
en ég er ekkert sérstaklega illa haldin núna, en stefnan er sett á bælið
snemma í kvöld til þess að rétta þetta af..... gangi mér vel:)
núna ætla ég að snúa mér að djobbinu aftur.....

Skrifað 26.8.2008 kl. 9:00 af Kristínu

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.8.2008

sumardagur

Skoða nánar

20.8.2008

eiginleiki eða ?

Skoða nánar

19.8.2008

stjörnuspáín mín í dag:)

Skoða nánar

16.8.2008

laugardagur

Skoða nánar

15.8.2008

ágrip af ævisögu

Skoða nánar

9.8.2008

ég segi það...

Skoða nánar

8.8.2008

Ísland

Skoða nánar

8.8.2008

bloggað um ekkert

Skoða nánar

6.8.2008

blogg takk!

Skoða nánar

5.8.2008

rússibani

Skoða nánar

4.8.2008

frídagur verslunarmanna

Skoða nánar

1.8.2008

fyrsti ágúst!

Skoða nánar

1.8.2008

K - 42

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 24
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 19
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 66477
Samtals gestir: 22243
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 23:24:49

Vafraðu um

Ég

Nafn:

Kristín

Afmælisdagur:

31. október

Heimilisfang:

K-42

Staðsetning:

Hornafjörðurinn fallegi

Faðir:

Jón

Móðir:

Hóffý

Önnur vefsíða:

kjonk.blogdrive.com

Uppáhalds manneskjur:

Ástin mín og strákarnir
clockhere

Tenglar