|
Kristín krunkar... krunk krunk |
|
Blogg28.11.2008ekki mörg orð...nenni ekki að blogga en rakst á þessa fínu stjörnuspá í mogganum í dag og þetta er sko sporðdrekinn semsagt spáin mín :) og er ég allveg ferlega ánægð með þetta! ´hér kemur hún... haldið ykkur eða setjist hehehe... *LÁTTU ÞAÐ EFTIR ÞÉR AÐ SKVETTA SVOLÍTIÐ ÚR KLAUFUNUM EN GÆTTU ALLRAR HÁTTVÍSI. GÆTTU ÞESS ÞÓ AÐ TAKA TILLIT TIL ÞINNA NÁNUSTU* góða helgi 27.11.2008kvöldin eru......kyrrlát útá nesi nei, hvernig var þetta? ég fór sko ekkert snemma að sofa í gær... fyrst kokkurinn var búinn að hita ofninn þá ákvað ég að baka eina kökusort.. mér fannst þetta eitthvað svo lítið magn af kökum svo ég hrærði í aðra og bakaði hana líka! barasta svona ég heklaði síðan smá og horfði á imbann, las yfir íslenskuritgerð hjá stóra mínum og leiðrétti smá hehe.. jájá ÉG var að leiðrétta stafsetningu! og commenta svo aðeins á lokaorðin... fannst ég bara standa mig nokkuð vel! en það á nú eftir að koma í ljós huhummm..... prílaði í bælið uppúr miðnætti... sem var nú allt of seint miðað við fyrri andvakanætur í vikunni... en ég hlít að geta jafnað þetta út um helgina spurning um að kaupa bara nóg af jólabjórnum og baka mörg 'pæ' ! hahaha... jájájá fór í Holtsendann aðeins í gær og fékk nýbakaðar smákökur og kaffi, fullt af sögum hjá Aroni og grallarabrall hjá Vigni :) þetta eru svo mikil skott þessir drengir og nú þarf Vignir alltaf að fá 'vatn' (það er sko eiginlega kók) þegar ég kem því ég var nú svo góð að gefa honum kók með mér um daginn :) æji þetta litla skott er endalaust mikil dúlla það fer nú bara allveg að skella á hádegi! alldrei að vita nema ég bæti við þetta síðar í dag..... 26.11.2008kokkurinngamlan ég þarf ekki að elda í kvöld hann Róbert Marwin ætlar að sjá um það og fáum við ýsu með eplum! jájá hjómar vel ég er búin að vera alltof syfjuð í allann dag! úff phúff bara! mér datt ýmislegt sniðugt í hug í dag til þess að blogga um en núna er það allt tínt þarna úpppi! toppstykkið er ekkert að virka í dag frekar en aðra daga þarf að setjast niður og rifja upp gamlar stundir og góðar mynningar eða góðar stundir og gamlar mynningar????? og setja eitthvað skemmtilegt lesefni hér inn! en bezt að lofa engu... ÆTLA að baka eplapæ og fá mér jólabjór um helgina! það getur ekkert stöðvað mig... EKKERT ...verð að fara snemma að sofa í kvöld 26.11.2008TVþað er voðalega erfitt eitthvað að fara að sofa á 'kristilegum' tíma þessa dagana eða öllu heldur þessi kvöldin.... Sjónvarpið sem er inní herberginu mínu er eikkað farið að bila og ég þori ekki að kveikja á því hehe... man sko allveg þegar tv-ið hjá Valda gamla Fil 'sprakk' í denn... hahaha... en man þetta ekki betur en svo að mamma sagði mér söguna af þessu í kvöld þegar hún kíkti við og ég bauð henni uppá pasta, hvítlauksbrauð og kaffi á eftir :) ég fór að tala um bileríið á imbanum og rifja upp þegar imbinn hans Valda 'sprakk' !! haha... það sprakk nefninlega ekkert hahaha... málið er að Valdi Filippusson bjó uppi og við leigðum niðri í Holti, já Holt var gamalt hús (kofi) uppá 'tunguhól' :) það kviknaði í sjónvarpinu hjá þeim gamla og hann kom víst með það logandi niður stigann en pabbi tók við því og bar það út á hlað og þá var nú aðeins farið að loga meira í því, pabbi náði í vatn í fötu og skvetti á eldinn og þá SPRAKK skermurinn! þannig að það er ekkert skrítið þó að ég muni bara eftir að það hafi sprungið! þegar við rifjuðum þetta upp í kvöld, lá við að ég fyndi lygtina af brennandi plastinu ooojjjj hvað ég man að hún var vond! ég var sko bara þriggja! eða fjögurra! hehe... en ég er semsagt með 'imba-fóbíu'!! og hananú! eitthvað bilaði nú endirinn á þessari færslu þar sem fartölvan datt út! en ég læt þetta fara svona.... nenni ekki meir! er að hugsa um að reyna að lesa mig í svefn.....góðar stundir! Flettingar í dag: 10 Gestir í dag: 5 Flettingar í gær: 17 Gestir í gær: 10 Samtals flettingar: 66444 Samtals gestir: 22227 Tölur uppfærðar: 20.3.2010 11:23:55 |
Vafraðu umEldra efni Ég Nafn: KristínTölvupóstfang: kjonk@simnet.isAfmælisdagur: 31. októberHeimilisfang: K-42Staðsetning: Hornafjörðurinn fallegiFaðir: JónMóðir: HóffýÖnnur vefsíða: kjonk.blogdrive.comUppáhalds manneskjur: Ástin mín og strákarnirclockhere Tenglar
|