Kristín krunkar...

krunk krunk

Blogg

30.1.2009

einu sinni var...

...og sumt er enn!

Þegar ég var krakki var ég rosalega feimin,
þegar ég var unglingur fannst mér margir vera yfir mig hafnir!
bara eitthvað sem ég ákvað held ég, því sumt af þessu fólki
sem mér fannst yfir mig hafið er bara fínasta vinafólk (kunningjar) í dag,
eða þannig. En samt er það þannig í dag, þrátt fyrir að vera komin á
fertugasta aldursárið, að sumt fólk hreinlega lítur niður á mann eins og
maður sé annars eða þriðja flokks! já ég er að segja það!
Skrítið hvað það getur rignt uppí nefið á sumu fólki!
Skrítið hvernig fólk getur litið á mann 'hornaugum' !
Skrítið hvað maður getur fundið fyrir einhverskonar andúð frá sumu fólki!
SKRÍTIÐ bara vægast sagt!!!
en maður finnur stundum andúðina... allveg satt!
Kanski er ég bara þriðji flokkur :) en ef ég er það er ég svakalega stolt
af því að vera þriðja flokks :)
Kanski lygta ég svona illa? en þá er ég nú bara stolt af því að lygta 'illa' :)
Kanski er ég svona hallærislega tilhöfð? en þá er ég nú bara stolt
af alltofstóru svörtu buxunum mínum, svörtu flíspeysunni minni,
gráa pilsinu mínu, svörtu nýju adidasskónum mínum,
gömlu lúnu kúrekastígvélunum mínum og götóttu lopapeysunni minni:)
Og svo ég minnist nú ekki á 'allar fínu dýru dragtirnar mínar' emoticon
nei þetta er nú bara smá útúrdúr og brandari portkvenna :) hahaha....

jæja og já það er kominn föstudagur og fínasta helgi framundan...
nema hvað veðurspáin er ekkert alltof næs!
Það verður allavega ekki mikið riðið út ef spáin fer sem horfir!
ekki það að ég sé eikkað að ríða út :) nebbs....
Ansi erfitt að fara í hesthúsin án þess að fá sér eins og eina sígó:)
kanski hætti ég ekkert allveg að reykja! kanski hætti ég bara allveg!!
úfff... emoticon  geðvonskan emoticon sem fylgdi reykleysinu er næstum búin...
þori ekki að segja að það sé allveg yfirstaðið :) hehe.....
þarf að fara að sparka í bossann á mér og hífa mig uppúr svona
'nennekkineinu' standi.... ætti kanski að reyna það um helgina :/

góða helgi og knús emoticon

Skrifað 30.1.2009 kl. 9:32 af Kristínu

Bein slóð á færslu

13 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

28.1.2009

það gengur allt sinn vanagang...

lífið heldur áfram þrátt fyrir ört hækkandi matarkörfu!
maður fer ekki lengur í búð með einhverja þúsundkalla...
maður verður að hafa það nokkra fimmþúsundkalla... emoticon
Maður verður að vera duglegur að moka skít því sama gildir yfir spæninn,
hann hefur bara hækkað! úfff... en þetta lagast emoticon einhverntímann
Það hefur lítið farið fyrir áramótaheitunum mínum síðustu daga!
ekkert búin að labba nema heim úr vinnunni í gær :)
mokaði svo skít í hesthúsinu í gær og var það mikið puð fyrir
gamla konu sem er ekki í formi eða jú! ég er í ágætis formi hehe...
svona miðað við allt og allt emoticon
Svo, af því að ég hef ekki bloggað lengi verð ég að segja það
að af okkur, genginu á K-42 er allt gott að frétta, strákarnir mínir
hafa það gott, eru mikið heima við því hér er búið að rigna eins og emoticon
og rok með því! allgjört 'vertuheimaundirsængmeðgóðabók' veður undanfarið.
Þorrablótið var um síðustu helgi og ég sekmmti mér rosalega vel þar:)
fórum reyndar heim eftir borðhald þar sem frúin ég nennti ekki að vera á balli!
þetta hefur nú sjaldan heyrst en þetta er til sko hehe.....
fyrir rúmri viku tók ég mig til og 'hætti' að reykja!! þetta var ekkert ákveðið
en einn sunnudaginn var ég svo löt að ég nennti ekki einu sinni að fara
fram að reykja svo daginn eftir prófaði ég að sleppa þessu bara áfram og
þetta hefur gengið ágætlega nema kanski að ég er svo geðvond!
og það er allveg skelfilegt að vera svona geðvondur!! bitnar á mínum nánustu
en eftir að ég stökk uppá nefið á mér í gær er ég ákveðin í að halda
mér á mottunni í dag :) fæ mér frekar bara sígó seinni partinn heldur
en að öskra á strákana mína emoticon hef allveg fengið mér eina og eina
sko en held þetta endi með því að ég hætti allveg því ég er svo dugleg að
ég get það allveg! úhhjeeee.....
ágætis veður í firðinum fagra í dag en stefnir í ömurlegt á morgun...
Vinnufélaginn fór í göngu seinnipartinn í gær og voru fjórum rollum smalað heim!
og það er kominn janúar, næstum því febrúar og þeir eru enn að smala ?
ótrúlegt allveg hvað þeir nenna að skilja þetta alltaf eftir til þess að
komast aftur til fjalla hehehehe.....
þær fara að hrúast inní 40% aldurinn vinkonurnar mínar emoticon og bekkjarsystur
Inga Rósa í dag og svo koma þær á færibandi í febrúar....
en ég sjálf :) ég er bara ný orðin þrjátíogníu emoticon  hehh he..
jæja jájá Venni minn fer á fund í reykjavíkinni með seinna fluginu,
stefnir svo á flug heim seinnipart á morgun en veðurspáin var
nú ekki frínileg fyrir fimmtudaginn! ég tapa mér ef það verður ekki flogið!
ekkert leiðinlegra en vera án hans hehe.... !
jæja elskurnar best að hætta að bulla hér um ekki neitt...
góðar stundir


Skrifað 28.1.2009 kl. 9:02 af Kristínu

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.1.2009

brandari


Tveir formenn stóðu og klóruðu sér í hausnum fyrir framan
flaggstöng þegar konu eina bara að.  Spurði hverju þeir
væru að velta vöngum yfir. Aaaaa, við eigum að finna hæðina
á stönginni en við erum ekki með neinn stiga.  
Aaaaa, heyrðist frá konunni, opnaði tösku sína, tók út
skiptilykil, losaði stöngina upp, lagði hana niður,
tók nú upp málband og mældi stöngina:  5 metrar og 65 sentimetrar,
og hélt hún síðan á braut.

Eftir stóðu þeir félagar skellihlægjandi:  Er þetta ekki dæmigert
fyrir konur, okkur vantaði hæðina en hún sagði okkur lengdina.

Skrifað 26.1.2009 kl. 10:43 af Kristínu

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.1.2009

bóndadagur


til hamingju með daginn strákar!

Þorrablót á morgun, hákarl og brennivín ;)

sjáumst þar

góða helgi


Skrifað 23.1.2009 kl. 8:44 af Kristínu

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.1.2009

jahjarnahjer!

Skoða nánar

21.1.2009

skamm amma

Skoða nánar

19.1.2009

dauði og d ö ull

Skoða nánar

16.1.2009

Leeeeeti leti leti leti leti

Skoða nánar

15.1.2009

ég vil

Skoða nánar

15.1.2009

betur má ef duga skal...

Skoða nánar

15.1.2009

áhugavert

Skoða nánar

14.1.2009

þannig er það nú bara...

Skoða nánar

11.1.2009

helgaræði

Skoða nánar

9.1.2009

janúar

Skoða nánar

4.1.2009

tíminn líður hratt

Skoða nánar

3.1.2009

duglega...

Skoða nánar

2.1.2009

árið

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 19
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 66459
Samtals gestir: 22237
Tölur uppfærðar: 21.3.2010 12:13:46

Vafraðu um

Ég

Nafn:

Kristín

Afmælisdagur:

31. október

Heimilisfang:

K-42

Staðsetning:

Hornafjörðurinn fallegi

Faðir:

Jón

Móðir:

Hóffý

Önnur vefsíða:

kjonk.blogdrive.com

Uppáhalds manneskjur:

Ástin mín og strákarnir
clockhere

Tenglar