|
Kristín krunkar... krunk krunk |
|
Blogg12.6.2009í sveit sveit í suðursveit...það verður brunað í sveitina í kvöld og þar ætlar Vennsinn 8.6.2009hvernig er staðan?Staðan er fín og nú er sjómannahelgin liðin og allir vonandi jafn sáttir og sælir með hana eins og ég og mínir. Strákarnir skelltu sér í bæinn á Lan-mót um helgina... Ég og Venninn skelltum restinni af staurunum í holurnar.... Fórum líka í megasvaka gott og flott matarboð á föstudagskvöldið til Klessu og Sigga á K-55 og mikið rosalega fékk ég gott og mikið að borða!!! mmm.... takk fyrir okkur elskurnar, þið eruð æði bæði. Ég og tengdadóttirin settumst svo niður í fínu stofunni og fengum okkur öl og spjölluðum aðeins saman og það var bara fínt því ég er sko ekki að tala ensku þegar Íslendingar heyra til! ónei en ég babblaði við hana og hún skildi mig allveg þessi elska sem mér finnst nú bara gott og 'þú' þarft ekkert að vera að commenta á það hahahahaha.... ég talar bara íslenskur ;) ég skellti mér svo í vinnu við að þjóna sjómönnum, landkröbbum og þeirra fylgifiskum til borðs á sjómannahátíð í íþróttahúsinu og seldi svo veigar framm á morgun og gekk það bara fínt. Í gær vaknaði ég svo passlega til þess að skella mér í fermingarveisluna hans Atla Dags í Mánagarði og það er engum blöðum um það að fletta en ég var södd og sæl og ánægð og 'útétin' þegar við héldum heim á leið. Þvílíka flotta veislan með góðum mat og kökum.... mmmm....... ég verð nú bara svöng við það að pikka þetta hér! Fékk mér einn kaldann og skreið undir sæng því Venninn skellti sér í hesthúsið því hann vill miklu frekar vera þar en hjá mér þessi elska, skil það nú bara ekki!!???! hehh.... dormaði mér í bælinu þangað til hann kom heim í gærkvöldi, færði mig þá framm í sófann fyrir framan imbann og átti afslappað kvöld í faðmi fjölskyldunnar :) hvað er hægt að hafa það betra? Í dag er svo bara vinna vinna vinna vinna.... nóg að gera og ég bara á blogginu!! 3.6.2009sumarsælaþað hefur ýmislegt á daga okkar drifið hér á K-42 :) og ætla ég að rifja það upp í belg og biðu eða bara eins og ég sé að tala við þig júnó? hahaha..... ég æði nebblega alltaf úr einu í annað svo stundum skilur mig enginn eða er það kanski alltaf svoleiðis<' ég er allavega misjafnlega torskilin og stundum skilin útundan! hahaha.... en mér er nú allveg sama um það Hvítasunnuhelgin kom og fór með svaka brölti á heimilinu... ákváðum nebblega að prófa að pússa parketið í stofunni og lakka það uppá nýtt eða semsagt prófuðum að hvítta það og útkoman varð..... jahhh.... hvernig á ég að orða þetta???? parketið endaði í ruslaportinu og það er komið nýtt á stofuna :) og mikið rosalega er ég nú ánægð með það var löngu búin að fá nóg af þessu dökka gólfi.... Skelltum okkur líka í fermingaveisluna hennar Vigdísar Maríu minnar litla sæta ömmustelpan fermdist á hvítasunnudag og mikið rosa var þetta flott veisla hjá þeim! mmmm..... snilllllld! núna í þessum pikkuðu ákvað Venninn minn að rífa burtu stéttina sem liggur/lá að aðalinnganginum á K-42 en við erum búin að færa hann 'réttu megin' á húsinu :) svo á bara að fara að hanna palla þarna í staðinn :) rosalega langar mig að era þarna með þeim og skíta mig aðeins út! Lenti nebblega í smá skítabrasi í gærkvöldi en við skötuhjúin fórum sko inní hesthús að setja inn tvær heyrúllur og ég varð skítug uppfyrir haus! og það var nú bara ferlega cool. ekkert betra fyrir sál og líkama en að drullumalla í sveit sólar í Fagrafirði :) úhhhjeeeeee...... ég hef ekki enn farið í sundlaugina okkar fínu! af hverju? jahhh ekki spyrja mig! :) hef bara haft öðrum hnöppum að hneppa en ekki svo að skilja að það séu einhverjar tölur á bikiníjinu mínu :) hehehe.... nebb... ástæðan er kanski frekar sú að ég sólbrenn svo auðveldlega og hér er bara sólskin allann sólarhringinn!!! bilívðat or not ;) verð að geima sundstundir framm á vetur því haustsólin er svo sterk! bla bla bla.... þetta bull er bloggað með Önnsu pönnsu efst í huga :) sakna hennar geðveikt!!! sko geðveikt! en við ætlum að bæta úr því á föstudaginn og ómæj hvað ég hlakka til þangað til næst, hvenær sem það nú verður, knús og Flettingar í dag: 19 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 19 Gestir í gær: 9 Samtals flettingar: 66472 Samtals gestir: 22241 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 18:04:27 |
Vafraðu umEldra efni Ég Nafn: KristínTölvupóstfang: kjonk@simnet.isAfmælisdagur: 31. októberHeimilisfang: K-42Staðsetning: Hornafjörðurinn fallegiFaðir: JónMóðir: HóffýÖnnur vefsíða: kjonk.blogdrive.comUppáhalds manneskjur: Ástin mín og strákarnirclockhere Tenglar
|