|
Kristín krunkar... krunk krunk |
|
Blogg21.8.2009sveitinjá þá er það sveitin mín í dag.... ...óbyggðirnar kalla og ra ra ra raraaaaaaa.... ...ég veit ekki hvort eða hvernig, eða hvenær ég kemst heim... bla bla úti hvín í vindinum, gjebba gott að vera bara inni og þykjast vera að vinna. Verð að muna að pakka niður nikkunum.... alldrei að vita hvort maður fer í dósamatinn.... ég hef fengið ýtarlegar fréttir af gangi mála á ferðaþjónustunni minni undanfarna viku og það er góð tilfinning að mín skuli vera sárt saknað... mjög góð tilfinning en við sjáumst hér síðar, góða helgi allir mínir vinir 20.8.2009sjáum nú til.......það kom rigning aftur! ótrúlegt að það skuli gerast hérna í firðinum fagra tíðindalítill dagur... en á morgun (annað kvöld) ætla ég að skella mér í sveit sólar og vinna af mér rassgatið um helgina hlakka bara til þar sem ég frétti að Dóttlan væri að klúðra þessu og litla skjessan Nafna mín að skamma aðra starfsmenn fyrir það að vera að skamma mömmu hennar!!! uuuu.....? hehe... það er bara svo mikil snilld að vera á ferðaþjónustunni minni... Kvöldin s.l. viku eru búin að fara í smá aukavinnu og svo hef ég bara legið í rúminu og safnað kröftum eftir "langvarandi drullu" hahaha.... mér finnst alltaf jafn fyndið að segja "drullu" og af því að ég slappa svona hrikalega af þá er ég komin á fætur fyrir kl 7 á morgnana sem er bara næs :) jæj A hef ekki frá nokkrum sköpuðum hlut að segja! ?? 19.8.2009hor og slenbúin að þjást af drullu á röngum stað eins og Ljósa mín komst svo skemmtilega að orði um daginn eða já drullu í hausnum en Halldóra sys kom til mín og potaði eikkað uppundir kúbuna á mér í gærkvöldi og ég held hún hafi bara potað alla verki í burtu!!! ég svaf eins og steinn í næstum alla nótt og er bara fín í andlitinu!!! merkilegt að fatta ekki nuddarann sinn fyrr!!??? en nú er ég búin að uppgvötann og ekki aftur snúið ;) annars er allt í gúddíí, (ekki)haust rigningin hérna úti og það RIGNIR sko!! en það er nú bara gott fyrir gróðurinn!! er það ekki? er farin í afmæli á kaffistofunni ;) 18.8.2009sumarið er tíminn....til þess að vinna aukavinnuna! :) ég er semsagt búin að vera á Ferðaþjónustunni minni á Smyrlabjörgum síðustu tvo mánuði og kom í vinnuna mína núna í gær. Það er búið að vera mikið að gera og rosalega skemmtilegt í allt sumar :) ég kynntist fullt af skemmtilegu fólki sem gaman var að fíbblast með... ég gæti nú verið mamma flestra sem ég vann með en það er nú bara skemmtilegt að segja frá því hehe... það var tekið á því bæði í vinnu og á pallinum ;) jájá sei sei :) Næstu tvær helgar ætla ég svo að fara í sveitina mína og vinna sem þíðir það að það verður ekkert sofið út fyrr en einhverntíman í vetur en ég hlít að lifa það af! það er annars ágætt að vera kominn í stólinn en ég er að hugsa um að reyna að vera dugleg að fara út að labba og hjóla svo ég safni ekki spikinu aftur sem ég skildi eftir á snúrunni ;) já ég er að segja ykkur það að þrátt fyrir hlabba á hverju kvöldi, dýrindis hádegisverði og svo auðvitað morgunverðahlaðborð með eggjum og beikoni.... og svo grillaði Bjössi minn nokkrum sinnum oní okkur vistmennina, en þá minkaði ég bara allveg slatta :) og er auðvitað híber ánægð með það! en ekki hvað... svona er að vera á snúrunni í tvo mánuði ;) nú líður að skólasetningu og mér finnst 'ann líka orðinn ansi haustlegur þarna úti! Ottó minn og Claudia mín eru flutt í bílskúrinn Hlíðartúni 5! jájá við verðum allveg þrjú í kotinu í vetur... skrítið en spennandi líka :) ég ætla að gera svo ótalmargt heima í vetur.... ætla semsagt að klára að flytja inn!!! finnst einhvernveginn vera komin tími til þar sem við fluttum inná K-42 í júní 2006 og semsagt komin þrjú ár síðan og rúmlega það :) og í kössum útí bílskúr leynast myndir og allskonar dót sem ég hef sankað að mér í gegnum tíðina og er hreinlega farin að sakna.... jájá ég vil hafa dót í kringum mig :) já eins og ég kom að áðan þá er skólasetning hinumegin við hornið, við Róbert förum á "okkar" setningu 24. kl 20 :) "barnið" mitt er að fara í 10. bekk!!!!!! ha? já það er von´ðú hváir! hihi.... ég næ þessu ekki.... ellimerkin hlaðast utan á mig eins og metalíur og talandi um metalíur þá vann ég mér inn eina slíka á ferðaþjónustunni í sumar og á henni stendur "starfsmaður augnabliksins" hahaha... þetta er gjebba flott og ég var sko allveg búin að vinna fyrir henni ;) en nú ætla ég ekki að halda áfram að vinna... neinei ætla mér á kaffistofuna að blaðra aðeins.... :) Flettingar í dag: 19 Gestir í dag: 10 Flettingar í gær: 19 Gestir í gær: 9 Samtals flettingar: 66472 Samtals gestir: 22241 Tölur uppfærðar: 21.3.2010 18:04:27 |
Vafraðu umEldra efni Ég Nafn: KristínTölvupóstfang: kjonk@simnet.isAfmælisdagur: 31. októberHeimilisfang: K-42Staðsetning: Hornafjörðurinn fallegiFaðir: JónMóðir: HóffýÖnnur vefsíða: kjonk.blogdrive.comUppáhalds manneskjur: Ástin mín og strákarnirclockhere Tenglar
|