Kristín krunkar...

krunk krunk

Blogg

28.10.2009

ristabrauð með sultu

jæja, nú er ég komin með kaffi í bolla, súkkulaði á kantinn
og þá er ekki eftir neinu að bíða og blogga bara!

Tók flugið til Reykjavíkur s.l. föstudagsmorgun með Venna mín,
en við skelltum okkur í helgarferð í boði Húsasmiðjunnar :)
mikið rosalega var þetta frábær helgi með góðu fólki
og ég snæddi morgunmatinn á laugardeginum með Sultan Kosen,
stærsta manni í heimi og ég skal segja ykkur það; SÁ ER STÓR!
Við, húsasmiðjugengið, höfðum nóg að gera saman sem var
bara skemmtilegt :) tíminn var nýttur útí það ítrasta og þá helst
til að borða góðann mat og drekka góða vökva :)
hvíldum okkur aðeins inná milli ;) (allavegu einu sinni)
Árshátíð Húsó var svo þarna í Gullhömrum, Grafarholti á laugard.kvöldinu
þar sem maturinn var ÆÐI og skemmtunin fór frammúr öllum væntingum ;)

takk fyrir mig

útifyrir lemur rigningin á gluggann, mmm.... aaaahhhhh....
gott að vera inni híhí... ég verð eldri með hverjum deginum....
líður að því að maður poppist yfir á fimmtugsaldurinn en ég held
það verði nú bara næs líf :) það segja allir 'gömlu' vinir mínir híhíhí...emoticon
skrítið samt að vera svona 'diffrent' fara beint af þrítugsaldrinum
yfir á fimmtugsaldurinn!!! ??

úfff... hvað ég er andlaus! kemur ekki eitt sniðugt framm í fingurgómana!

fer bara að vinna.... arrrg...



Skrifað 28.10.2009 kl. 9:50 af Kristínu

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.10.2009

What About Now

já það er bara gaman að vera til og nóg að gera.
Í dag á hann Róbert Marwin minn, litli engillinn  hennar mömmu sinnar afmæli.
Hann er orðin 15 ára gamall!!! Maður getur ekki annað en litið aðeins um
öxl og rifjað upp þessi 15 ár sem manni finnst allt of langur tími!
og barnið er bara nýkomið í heiminn!!!! Þessi elska er bara yndislegur,
orðinn mikill töffari og hefur sterkar skoðanir emoticon
'Það var bara í gær' sem hann notaði orð eins og Oggó, Óbó, Ísó og aaagggrraa!
sem þíddi sko Halldóra hahaha.... seinna náði hann betri tökum á þessu
og sagði 'Handaða' og hann á þessa fleygu setningu sem er enn notuð
á hann til þess að stríða honum svolítið; hey, bjóstahandaða! allveg eins og Handaða!
hahaha.... já þvílíkur snillingur þá og þvílíkur snillingur nú :)
Heyrðu já! skelltum okkur á frumsýninguna á Popp og Kók og það var bara gaman.
Þarna komu nýjir söngsnillingar framm á sjónarsviðið ásamt gamalreyndum...
og svo var maturinn góður! mjög góður :) ég skemmti mér rosalega vel
í rosalega góðum félagsskap en við fórum saman, gamla gengið,
sem höfum farið saman í nokkur ár :) takk fyrir mig :)
svo er ég búin að fá cd með milljón trilljón myndum frá henni Svöfu minni
en ég á eftir að ritskoða og kanski skella nokkrum inná facebook ! :)
hver veit!?
nú svo er stefnan takin á borg óttans um næstu helgi, á árshátið Húsó
og auðvitað kíkir maður á Braga bróðir í leiðinni! kallinn að verða 50 :)
jæja vinnan kallar! sem mynnir mig á að segja frá því að breytingum á
Sýsluembættum Íslands hefur verið frestað um óákveðinn tíma svo
ég er hætt að bíða eftir uppsagnarbréfi.... í bili, sem er viss léttir.

vá og já! færsluna kalla ég What About now og segi svo ekki frá því
að ég gaf bandinu, Westlife að borða og drekka í gær!
horfði á þá máta búninga og hlustaði á þá raula og syngja!
Ekki það að ég sé einhver híberfan, vissi ekki einu sinni hver var
í þessu bandi og hver var hárgreiðslumaðurinn hahaha.....
en það er nú aukaatriði ;)  það er semsagt að koma plata
frá þeim, vinum mínum ;) og myndband í bígerð í sveit sólar
í þessum pikkuðu ;) jájájá seisei....

og nú segi ég bless

Skrifað 19.10.2009 kl. 10:13 af Kristínu

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.10.2009

þegar góðir kvitta

Það er eins og vítamínsprauta þegar gott fólk kvittar fyrir lesturinn!
það eiga nefninlega allir að kvitta fyrir lesturinn!!

en af okkur er allt gott að frétta, við höldum ennþá vinnunni hérna,
en ýmislegt í gangi þó svo að maður viti ekki mikið....
það er bara þannig að þegar maður vinnur hjá ríki, verður maður
bara að fylgjast með fréttum í fjölmiðlum! ótrúlegt!!
en kanski er það yfirmaðurinn sem upplýsir okkur ekki, ég veitiggi...
en hvað um það

Heima er alltaf verið að duddast eikkað...
eigum bara eftir að skifta um 2 og 1/2 innihurð :) hehe...
segi hálfa því Venna datt í hug að stækka hurðagat í gær
og nú er rykský yfir öllu!!! hahaha ótrúlegur kallinn en bara svo duglegur
að ég ætla nú ekki að kvarta :) ég þurrka bara af jájá :)

í október verður brjálað að gera hjá okkur en á föstudaginn 9.
er frumsýning hjá skemmtifélaginu á verkinu 'popp og kók' og við Vennsi
verðum þar, síðan er árshátíð húsasmiðjunnar 24. og þar verðum við líka!
JóBró verður svo 30, R.Marw verður 15, Saga verður hva....4.?
já sæll!! tíminn flýgur, ég verð 40 :) og það eru svo miklu fleiri sem verða,
í október :) BragiBró verður 50, tengdapa verður 81. og svona gæti
ég talið endalaust! jájá brjálað að gera í skemmtanalífinu hjá okkur....
það er nú bara gaman að því :)

bling!

Skrifað 6.10.2009 kl. 9:00 af Kristínu

Bein slóð á færslu

6 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 15
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 11
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 66432
Samtals gestir: 22222
Tölur uppfærðar: 19.3.2010 20:33:27

Vafraðu um

Ég

Nafn:

Kristín

Afmælisdagur:

31. október

Heimilisfang:

K-42

Staðsetning:

Hornafjörðurinn fallegi

Faðir:

Jón

Móðir:

Hóffý

Önnur vefsíða:

kjonk.blogdrive.com

Uppáhalds manneskjur:

Ástin mín og strákarnir
clockhere

Tenglar